Auglýst eftir erindum á Menntakviku 2020

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og tengdum sviðum við Háskóla Íslands að taka þátt í ráðstefnunni Menntakviku sem fram fer 2. október næstkomandi.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur opnað fyrir skráningu og móttöku ágripa fyrir hina árlegu ráðstefnu, Menntakviku – rannsóknir, nýbreytni og þróun, sem haldin verður 2. október næstkomandi.
Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni. Þetta verður í 24. skipti sem Menntakvika er haldin.
Í fyrra voru, eins og árin áður, flutt yfir 200 erindi um fjölbreytt efni í tæplega 60 málstofum. Skipulag ráðstefnunnar verður með sama sniði og undanfarin ár og áhersla verður lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum. Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða sem áður bæði málstofur og veggspjaldasýningar, auk þess að mögulegt er að halda skipulagðar hringborðsumræður.
Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum, og tengdum sviðum, við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni og ekki síður starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni. Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar.
Fyrir utan að vera uppspretta nýrra hugmynda og þekkingar er ráðstefnan vettvangur mikilvægrar umræðu ár hvert.
Skráning er hafin, eins og fyrr segir, og búið er að opna fyrir móttöku ágripa. Skilafrestur ágripa er til miðnættis 1. júlí 2020. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangseyrir enginn.
Vinsamlegast fylgið þessum skilyrðum við skrif ágripa
- Hámarkslengd er 250 orð. Ágrip eiga ekki að innihalda heimildir
Í ágripi skal þetta koma fram
- Lýsa tilgangi rannsóknar
- Taka fram hvaða aðferðarfræði er notuð við rannsóknina
- Greina frá helstu niðurstöðum rannsóknar
- Álykta stuttlega út frá niðurstöðum