Auðu atkvæðin skipta máli

Þegar kosið er um kjarasamning teljast auð atkvæði með atkvæðum þeirra sem segja já. Þessu er öfugt farið þegar kosið er um boðun verkfalls. Nýfallinn úrskurður Félagsdóms mun hafa fordæmisgildi.
Félagsdómur hefur fellt úrskurð þess efnis að samkomulag um breytingar á kjarasamningi Félags íslenskra náttúrufræðinga og ríkisins sé í gildi þrátt fyrir að fleiri félagsmenn hafi vilja fella samninginn en samþykkja hann.
Greidd voru atkvæði um samninginn í apríl síðastliðnum og var kjörseðillinn settur upp með þessum hætti:
- Já, ég samþykki
- Nei, ég samþykki ekki
- Skila auðu
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var að 265 félagsmenn sögðu já, 278 sögðu nei en 21 félagsmaður skilaði auðu.
Félag íslenskra náttúrufræðinga taldi að niðurstaðan væri sú að samningurinn hefði verið felldur en túlkun ríkisins var á þann veg að samningurinn hefði verið samþykktur þar sem hlutfall þeirra sem felldu væri undir 50 prósent. Þarna skipta auðu atkvæðin meginmáli og tekur Félagsdómur undir skilning ríkisins á þau skuli talin með atkvæðum þeirra sem sögðu já. Þegar auðu atkvæðin bætast við atkvæði þeirra sem sögðu já verður niðurstaðan sú að 286 samþykktu en 278 felldu samninginn.
„Niðurstaða dómsins er sú að í atkvæðagreiðslum um kjarasamning eru auð atkvæði raunverulega talin með atkvæðum þeirra sem vilja samþykkja samninginn. Það er til samræmis við núgildandi reglur kjörstjórnar KÍ,“ segir Anna Rós Sigmundsdóttir, lögfræðingur Kennarasambands Íslands, og bætir við að því sé öfugt farið þegar kosið er um verkfall. „Þegar kosið er um boðun verkfalls þá teljast auð atkvæði með atkvæðum þeirra sem hafna því að fara í verkfall,“ segir Anna Rós.
Úrskurður Félagsdóms mun hafa fordæmisgildi komi svipaður ágreiningur upp.