Áttunda Þingi KÍ lokið

Fréttir|4. nóvember 2022

Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, sleit Þingi KÍ á föstudaginn. Þingið hófst á þriðjudag.

Um 230 fulltrúar aðildarfélaga KÍ hafa setið þing sambandsins síðan á þriðjudag. Málefnavinna gekk vel og störfuðu ellefu nefndir í hinum ýmsu málaflokkum. Afraksturinn er mikill og búið að móta stefnu KÍ til næstu fjögurra ára.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, sleit þinginu um þrjúleytið í dag. Hún þakkaði þingfulltrúum fyrir góð störf og farsælt þing. „Nú er ljóst hver leiðarljós í starfi Kennarasambandsins næstu árin eru. Búið er að marka stefnuna og þá er lítið annað eftir en að bretta upp ermar og hefjast handa, bæði innan fastanefnda KÍ og sambandsins sjálfs,“ sagði Jónína í ræðu sinni.

Jónína sagði skýrt að réttinda- og hagsmunabaráttu félagsmanna lýkur aldrei; stöðugt munu koma upp mál sem kalla á aðkomu formanna aðildarfélaganna.

„Ekki er hægt að horfa fram hjá því að sannarlega eru margar áskoranir sem bíða eftir þing. Í skólunum ykkar bíða ykkar ótal verkefni til úrlausnar, en líklega er nýliðun kennara á öllum skólastigum ein stærsta áskorunin sem við sem samband kennara stöndum frammi fyrir,“ sagði Jónína í ræðu sinni. 

Það sem sameinar okkur eru ákveðnar hugsjónir, eðli starfs okkar og sýn á nemendur sem hæfa einstaklinga. Við látum fagmennsku okkar, sérfræðiþekkingu og virðingu fyrir hvert öðru leiða okkur áfram – samfélaginu öllu til góða.

Siðareglur og umhverfisstefna

Nokkrar breytingar voru gerðar á lögum sambandsins, nýjar siðareglur, stefna í skóla-,
fræðslu-, vinnuumhverfis-, útgáfu- og jafnréttismálum voru samþykktar svo fátt eitt
sé nefnt. Þá leit umhverfisstefna dagsins ljós í fyrsta skipti í sögu KÍ.

Næsta þing, það níunda, verður haldið í mars eða apríl árið 2026.

Þingskjöl verða birt á vef KÍ eftir helgi.