Áttunda starfsár Skólaþings að hefjast

Fréttir|2. september 2014

Skólaþing er kennsluver Alþingis um löggjafarstarfið ætlað nemendum í 8.-10. bekk grunnskóla. Þar gefst nemendum kostur á að kynnast starfsháttum Alþingis af eigin raun með því að bregða sér í hlutverk þingmanna og taka fyrir mál á þingflokks-, nefndar- og þingfundum.

Áttunda starfsár Skólaþings er nú að hefjast en frá því það tók til starfa í nóvember 2007 hafa tæplega 9.700 nemendur heimsótt það, flestir úr 10. bekk. Kennarar og nemendur hafa lýst Skólaþinginu sem fræðandi og skemmtilegu.

Skólaþing er til húsa við Austurvöll, Austurstræti 8-10. Heimsókn í Skólaþing tekur um tvær og hálfa til þrjár klukkustundir og miðað er við að einn bekkur taki þátt í leiknum í einu, 12 til 32 nemendur. Ekkert gjald er tekið fyrir heimsóknina. Nánari upplýsingar um Skólaþing er að finna á vefsíðunni www.skolathing.is

Nú þegar hafa verið bókaðar nokkrar heimsóknir á komandi vetri og eru kennarar hvattir til að bóka heimsókn í tíma. Tekið er við bókunum og fyrirspurnum svarað í síma 563 0500 eða á netfangið skolathing@skolathing.is