Áttatíu milljónir til skólaþróunarverkefna

Mennta- og barnamálaráðherra afhenti í dag styrki til skólaþróunarverkefna í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Verkefnin eru afar fjölbreytt og áhugaverð.
Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar Sprotasjóðs, afhentu í dag rétt ríflega 80 milljónir króna til 30 verkefna á sviði skólamála. Tilkynnt var um styrkina við hátíðlega athöfn í menntamálaráðuneytinu við Borgartún.
Fram kom að aukið var við fjármuni Sprotasjóðs að þessu sinni, um 23 milljónir króna. Þvi var meira til skiptanna en sjóðnum barst alls 61 umsókn, samanlagt að upphæð 204 milljónir.
Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni
- Leikurinn sem leið til náms
- Gervigreind
- Grunnþáttur menntunar: Læsi
Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki að þessu sinni:

Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit styrkra verkefna Sprotasjóðs og nánari upplýsingar um hvert verkefni með því að velja númer verkefnis fremst í töflu.
Á gagnatorgi Rannís er einnig hægt að nálgast upplýsingar um styrkt verkefni Sprotasjóðs frá árinu 2022 og stutt lýsing úr lokaskýrslu birtist eftir að verkefni er lokið.

Styrkþegar Sprotasjóðs 2025-2026