Atlaga að launafólki í Finnlandi

Fréttir|14. september 2015

Stjórn Norræna verkalýðssambandsins (NFS) mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnar Finnlands um að veikja starfsskilyrði launafólks í landinu með grófu inngripi í samningsrétt stéttarfélaga og kjarasamninga. Í ályktun stjórnar NFS segir að með þessu séu stjórnvöld í Finnlandi að hafna hinu norræna módeli sem einkennt hefur norrænan vinnumarkað um áratugaskeið þar sem grunnstoðirnar eru þrjár; verkalýðshreyfing, atvinnurekendur og stjórnvöld. 

Þá segir í ályktuninni að með framgöngu sinni séu yfirvöld í Finnlandi að ganga gegn alþjóðlegum samþykktum sem tryggja réttindi og skyldur á vinnumarkaði, aðbúnað, hollustuhætti og fleira. Fari svo að áform finnsku ríkisstjórnarinnar um að þrengja að samningsfrelsi nái fram að ganga mun það rýra réttindi og vinnuumhverfi á finnskum vinnumarkaði; með alvarlegum afleiðingum fyrir finnskt samfélag og í norrænan vinnumarkað í heild sinni. 

Norræna verkalýðssambandið (NFS) er myndað af heildarsamtökum launafólks á Norðurlöndunum og er fulltrúi níu milljóna launamanna. 

Frétt um málið á vefsíðu Norrænu kennarasamtakanna (NLS).