Atkvæði greidd um samninga FL, FSL og SÍ

Fréttir|4. ágúst 2020

Atkvæðagreiðslur um samningana þrjá hófust í dag, þriðjudaginn 4. ágúst kl. 11:00.

Allsherjaratkvæðagreiðslur meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands, sem starfa hjá sveitarfélögum landsins, hófust í dag, þriðjudaginn 4. ágúst 2020 kl. 11:00 og standa yfir til föstudagsins 7. ágúst 2020 kl. 11:00. 

 

Atkvæðagreiðslurnar hófust kl. 11:00 þriðjudaginn 4. ágúst
Atkvæðagreiðslunum lýkur kl. 11:00 föstudaginn 7. ágúst

 

Um atkvæðagreiðslurnar

Atkvæðagreiðslurnar fara fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin. Smellið á tengilinn sem ber eitt af eftirfarandi heitum, en þau eru eftir félögum: Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2020, Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FSL 2020 eða Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SÍ 2020 og þá birtist atkvæðaseðillinn.

• Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
• Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið  greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
• Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
• Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðslurnar eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang fjola@ki.is og sími 595 1111.

 

Kjörstjórn Kennarasambands Íslands vill koma eftirfarandi á framfæri:

Talning auðra atkvæða í atkvæðagreiðslu um kjarasamning.

Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 5/1988 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði jafngilda atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.
Sjá einnig nýgenginn dóm Félagsdóms nr. 6/2020.