Atkvæði greidd um samning FL og SSSK

Fréttir|1. júlí 2022

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan samning Félags leikskólakennara og félagsmanna FL, sem starfa í leikskólum innan Samtaka sjálfstæðra skóla, hefst klukkan níu að morgni mánudags, 4. júlí.

Félag leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá Samtökum sjálfstæðra skóla. Greidd eru atkvæði um kjarasamning milli Samtaka sjálfstæðra skóla og Félags leikskólakennara sem var undirritaður 28. júní 2022, með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Kjörstjórn hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti.

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 9:00 mánudaginn 4. júlí
  • Atkvæðaðgreiðslu lýkur klukkan 15:00 miðvikudaginn 6. júlí

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. 

  • Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2022 – Samtök sjálfstæðra skóla og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei,   Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is.