Atkvæði greidd um samning FF og FS

Félagsmenn í FF og FS greiða nú atkvæði um nýjan kjarasamning við ríkið.
Allsherjaratkvæðagreiðsla í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) um nýgerðan kjarasamning stendur yfir. Greidd verða atkvæði um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla, og fjármála- og efnahagsráðherra vegna ríkissjóðs sem skrifað var undir 17. apríl síðastliðinn. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í FF og FS sem starfa hjá ríkisreknum framhaldsskólum.
- Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 12 þriðjudaginn 21. apríl
- Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 12 föstudaginn 24. apríl
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS 2020 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang fjola@ki.is og sími 595 1111.