Atkvæði greidd um nýjan kjarasamning FG

Fréttir|2. september 2016

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst klukkan 14.00 miðvikudaginn 31. ágúst og lýkur klukkan 14.00 mánudaginn 5. september 2016. Atkvæðagreiðslan er rafræn.

Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2016 og þá birtist atkvæðaseðillinn. 

Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.

Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.

Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Edda Margrét Hilmarsdóttir (edda@ki.is).

Kynningu á nýjum kjarasamningi má finna hér