Atkvæði greidd um nýja kjarasamninga FF og FS og upptaka frá kynningarfundi um kjarasamning
Nýir kjarasamningar KÍ-framhaldsskóla verða bornir undir atkvæði frá og með morgundeginum, 11. apríl. Kosningarnar verða rafrænar og hefjast klukkan 10 í fyrramálið og lýkur þriðjudaginn 22. apríl klukkan 12:00.
Um er að ræða þrennar kosningar, einar fyrir félagsmenn KÍ (FF og FS) í ríkisreknum framhaldsskólum, einar fyrir félagsmenn KÍ (FF og FS) í Tækniskólanum og einar fyrir félagsmenn KÍ (FF og FS) í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Þess má geta að í samningagerðinni vegna Tækniskólans annars vegar og Menntaskóla Borgarfjarðar hins vegar þá var ríkiskjarasamningurinn festur við fyrrgreinda skóla með tilteknum bókunum. Kosningarnar í Tækniskólanum og Menntaskóla Borgarfjarðar snúast því einnig um ríkiskjarasamninginn.
Kjörstjórn Kennarasambands Íslands mun að beiðni Félags framhaldsskóla og Félags stjórnenda í framhaldsskólum framkvæma almenna og leynilega atkvæðagreiðslu meðal allra félagsmanna FF og FS sem starfa í ríkisreknum framhaldsskólum.
Nýi samningurinn hefur verið kynntur félagsmönnum undanfarna daga en hægt að er að skoða samninginn og kynningarefni hér á vefnum. Kynningarfundur sem fram fór miðvikudaginn 9. apríl í Flensborgarskólanum var sendur út á netinu. Upptöku af fundinum má sjá fyrir neðan.
Hvernig á að greiða atkvæði?
- Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu. Einnig er hægt að kjósa aftur ef viðkomandi skiptir um skoðun og gildir þá síðasta kosningin.