Atkvæði greidd í Aðalþingi og Sólstöfum

Fréttir|22. ágúst 2022

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan samning Félags leikskólakennara og félagsmanna FL, sem starfa í leikskólunum Aðalþingi og Sólstöfum hefst klukkan 10 í dag, mánudaginn 22. ágúst.

Félag leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara sem starfa í leikskólanum Aðalþingi annars vegar og hins vegar í Waldorfleikskólanum Sólstöfum. 

Kjörstjórn hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti.

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 10:00 mánudaginn 22. ágúst
  • Atkvæðaðgreiðslu lýkur klukkan 16:00 miðvikudaginn 24. ágúst

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. 

  • Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2022 – Kennarafélagið ehf eða Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2022 – Waldorfleikskólinn Sólstafir  
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei,  Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is.