Atkvæðagreiðsla um samning Tækniskólans hófst á hádegi

Fréttir|24. júní 2021

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í FF og FS sem starfa í Tækniskólanum.

Allsherjaratkvæðagreiðsla félagsmanna KÍ, sem eru í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, sem starfa í Tækniskólanum hófst á hádegi í dag. Greidd eru atkvæði um nýtt samkomulag um framlengingu kjarasamnings KÍ og Tækniskólans sem skrifað var undir í gær. 

  • Atkvæðgreiðslan hófst klukkan 12 í dag, fimmtudaginn 24. júní. 
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12 á mánudag, 28. júní. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.

  • Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ og Tækniskólans og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla sem starfa hjá Tækniskólanum. 

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.