Atkvæðagreiðsla um samning FSL er hafin
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst klukkan 9.00 mánudaginn 7. desember og lýkur klukkan 15.00 miðvikudaginn 9. desember.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi stjórnenda leikskóla sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Félagar í FSL eru hvattir til að kynna sér kjarasamninginn sem má nálgast á læstu svæði. Þar er jafnframt launareiknivél.
Atkvæðagreiðslan
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum vef Kennarasambandsins. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FSL 2015 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir (fjola@ki.is).