Atkvæðagreiðsla um samning Fjölmenntar hefst í dag
Fréttir|26. maí 2021

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa hjá Fjölmennt.
Allsherjaratkvæðagreiðsla félagsmanna KÍ, í FF og FS, sem starfa hjá Fjölmennt hefst á hádegi í dag. Skrifað var undir samkomulag um framlengingu kjarasamnings KÍ og Fjölmenntar í morgun.
- Atkvæðagreiðslan hefst miðvikudaginn 26. maí 2021 klukkan 12.
- Atkvæðagreiðslu lýkur föstudaginn 28. maí 2021 klukkan 12.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
- Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ og Fjölmenntar í maí 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla sem starfa hjá Fjölmennt.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.