Atkvæðagreiðsla um samning FG hefst í dag

Fréttir|16. október 2020

Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning 7. október síðastliðinn.

Grunnskólakennarar, félagsmenn í Félagi grunnskólakennara, ganga til atkvæða um nýjan kjarasamning félagsins. Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 11:00 í dag og stendur í slétta viku, lýkur klukkan 11:00 föstudaginn 23. október. 

Hægt er að kynna sér samninginn hér. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin. Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2020 og þá birtist atkvæðaseðillinn.

• Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
• Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið  greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
• Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
• Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Talning auðra atkvæða

Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.

 

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðslurnar eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang fjola@ki.is og sími 595 1111.