Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning KÍ hafin

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Kennarasambands Íslands er hafin á vef KÍ. Frestur til að skila atkvæði er til klukkan 12:00, þriðjudaginn 4. mars.
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning KÍ/innanhússtillögu ríkissáttasemjara fer fram á vef KÍ frá klukkan 12:00 á hádegi í dag, föstudaginn 28. febrúar, og stendur til klukkan 12:00, þriðjudaginn 4. mars. Innanhústillagan, sem undirrituð var, með fyrirvara um samþykki félagsfólks, 25. febrúar 2025, er ígildi kjarasamnings aðildarfélaga KÍ við ríki og sveit.
Kjörstjórn KÍ hefur verið falið að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu um samninginn. Jafnframt greiða félagar í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum atkvæði um samkomulag um breytingar á tveimur kjarasamningsgreinum í sér kosningu.
Atkvæðisréttur
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í aðildarfélögum KÍ (FF, FG, FL, FS, FSL, FT og SÍ) sem starfa hjá ríkisreknum framhaldsskólum og stofnunum og sveitarfélögum landsins.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en getur ekki kosið skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar, Fjólu Ósk Gunnarsdóttur, sem athugar málið. Hægt er að senda henni póst á netfangið fjola@ki.is eða með því að hringja í síma 595 1111.
Framkvæmd atkvæðagreiðslu
Atkvæðagreiðslan, sem er leynileg, fer fram með rafrænt á vef KÍ. Kjörstjórn hefur gefið út eftirfarandi leiðbeiningar:
- Smelltu á hnappinn Atkvæðagreiðsla um kjarasamning 2025 efst á vef KÍ.
- Smelltu á greiða atkvæði.
- Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
- Veldu einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu*
- Smelltu á hnappinn KJÓSA neðst á síðunni.
- Að lokum kemur staðfesting á því að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun getur þú kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.