Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning FT

Fréttir|16. janúar 2022

Félagsfólk í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) getur greitt atkvæði um nýjan kjarasamning frá mánudegi, 17. janúar, til fimmtudagsins 20. janúar 2022.

Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna FT um nýjan kjarasamning félagsins hefst á morgun, mánudaginn 17. janúar. Kjarasamningur FT og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður 11. janúar síðastliðinn. 

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. 

Atkvæðaðgreiðsla hefst

  • Mánudagurinn 17. janúar klukkan 11:00

Atkvæðagreiðslu lýkur

  • Fimmtudagurinn 20. janúar klukkan 14:00

Vert er að geta þess að kynningarfundir um nýja samninginn fara fram mánudaginn 17. janúar, frá klukkan 10 til 11 (Ýtið hér til að fara á fundinn) og þriðjudaginn 18. janúar, frá klukkan 11 til 12 (Ýtið hér til að fara á fundinn).

Kynningarfundirnir fara fram á Teams. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já,   Nei,   Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Talning auðra atkvæða

Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.