Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning FSL

Fréttir|9. september 2014

Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna í Félagi stjórnenda leikskóla um nýjan kjarasamning hefst klukkan 12 fimmtudaginn 11. september. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 12 mánudaginn 15. september. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í FSL sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna. 

Kynningu á kjarasamningnum er að finna á læstri síðu og upplýsingar um kynningarfundi er að finna hér. 

Um atkvæðagreiðsluna

  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem ber heitið Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FSL og þá birtist atkvæðaseðill 
  • Veljið einn af svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu. 
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtast skilaboð með orðunum Atkvæði þitt hefur verið móttekið. Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði er hægt að smella á Hætta við kosningu. 

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir í síma 595 1111, einnig er hægt að senda Fjólu póst á netfangið fjola@ki.is.