Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning FL
Kjörstjórn Kennarasambands Íslands hefur ákveðið að atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara hefjist föstudaginn 4. desember klukkan 12 og ljúki á sama tíma þriðjudaginn 8. desember.
Félag leikskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning í húsakynnum Ríkissáttasemjara 26. nóvember síðastliðinn. Félagið hefur efnt til nokkurra kynningarfunda um hinn nýja kjarasamninginn. Hægt er að skoða samninginn á læstu svæði og hafa félagar í FL fengið sent aðgangsorð að síðunni.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Á Mínum síðum birtist flipi með heitinu Kosningar.
- Smellið á kosninguna sem ber heitið Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL og birtist þá atkvæðaseðill.
- Veljið einn af svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtast skilaboð með orðunum Atkvæði þitt hefur verið móttekið. Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði er hægt að smella á Hætta við kosningu.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.
Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir í síma 595 1111, einnig er hægt að senda Fjólu póst á netfangið fjola@ki.is.