Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT hefst í dag

Atkvæðagreiðsla um breytingar og framlengingu á samningi félagsins hefst kl. 13:00 föstudaginn 11. desember.
Kjörstjórn Kennarasambands Íslands hefur ákveðið að atkvæðagreiðsla um samning félagsins hefjist föstudaginn 11. desember 2020, kl. 13:00. Kosningin verður rafræn en henni mun ljúka þriðjudaginn 15. desember 2020, kl. 14:00.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn í launalausu leyfi, félagsmenn í beinni félagsaðild að KÍ, þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin. Smellið tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT 2020 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef viðkomandi skiptir um skoðun, er hægt að kjósa aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
Talning auðra atkvæða í atkvæðagreiðslu um kjarasamning.
Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.