Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL hafin

Fréttir|27. júní 2014

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst klukkan níu í morgun en henni lýkur fimmtudaginn 3. júlí kl. 12.00. Kosningin fer fram á „Mínum síðum“ á vef Kennarasambandsins en hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er (sjá nánar hér fyrir neðan).

Hægt er að kynna sér kjarasamninginn á læstri síðu á vef Kennarasambandsins en félagsmenn í FL hafa þegar fengið sent lykilorð í tölvupósti. Í morgun var bætt inn á kynningarsvæðið reiknivél þar sem félagsmenn geta séð hvaða áhrif samningurinn mun hafa á laun þeirra.

Um atkvæðagreiðsluna

Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL.

Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.

Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir og hægt er að senda henni póst eða hafa samband í síma 595 1111.