Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS

Atkvæðagreiðslan hefst á hádegi föstudaginn 9. apríl og stendur yfir til hádegis fimmtudaginn 15. apríl.
Allsherjaratkvæðagreiðsla félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum um nýgerðan kjarasamning fer fram dagana 9. apríl til 15. apríl næstkomandi. Greidd verða atkvæði um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi milli Kennarasambands Íslands v/framhaldsskóla og fjármálaráðherra v/ríkissjóðs, sem skrifaði var undir 31. mars síðastliðinn, með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
- Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 12 föstudaginn 9. apríl 2021
- Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 12 fimmtudaginn 15. apríl 2021
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins, www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki
eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni.
- Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði. Ef þú vill fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar, Fjólu Ósk Gunnarsdóttur (fjola@ki.is, sími 595 1111).
Talning auðra atkvæða í atkvæðagreiðslu um kjarasamning
Með vísan til dóms Félagsdóms nr. 6/2020 teljast auð atkvæði með greiddum atkvæðum. Yfir 50% allra greiddra atkvæða þarf til að fella kjarasamning. Það felur í sér að auð atkvæði geta jafngilt atkvæðum sem samþykkja kjarasamning.