Atkvæðagreiðsla um framlengdan samning FT hafin

Fréttir|15. desember 2023

Atkvæðagreiðsla um framlengdan samning Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum hófst á hádegi í dag. Henni lýkur á hádegi þriðjudaginn, 19. desember.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum skrifaði undir samkomulag um framlengingu á kjarasamningi í gærkvöld. Kynning og atkvæðagreiðsla hófust svo í dag, föstudaginn 15. desember. Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12:00, þriðjudaginn 19. desember. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

Kjarasamningur aðila rann út 31. mars síðastliðinn. Gildistími hins nýja samkomulags er frá 1. apríl 2023 til og með 31. maí 2024.

  • Hér er hægt að lesa meira um samninginn.

Framkvæmd atkvæðagreiðslu

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

  • Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT 2023.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já,   Nei,   Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.

Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir. Hægt er að ná á Fjólu með því að senda póst á netfangið fjola@ki.is eða hringja í síma 595 1111.