Atkvæðagreiðsla í stjórnarkjöri FSL hafin

Félagar í FSL kjósa sér stjórn félagsins fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Kosning í stjórn Félags stjórnenda leikskóla hófst klukkan tíu í morgun, mánudaginn 9. febrúar. Atkvæðagreiðslan stendur til klukkan 12 á miðvikudag, 11. febrúar.
Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
Stjórn FSL skipa, auk formanns félagsins, fjórir aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar.
Ný stjórn tekur við að loknum aðalfundi félagsins, sem fer fram 24. ágúst 2026.
Ellefu framboð bárust. Í framboði eru (í stafrófsröð):
- Anna Björk Marteinsdóttir
- Elín Friðriksdóttir
- Halla Ösp Hallsdóttir
- Halldóra Guðmundsdóttir
- Jóna Rut Jónsdóttir
- Jónína Einarsdóttir
- Lísa Lotta Björnsdóttir
- Margrét Gísladóttir
- María Petrína Berg
- Marthen Elvar Veigarsson Olsen
- Nichole Leigh Mosty
Kynningar á frambjóðendum og nánari upplýsingar um starfsreynslu, menntun og áherslur þeirra er að finna á kosningavef FSL.
Kosið í nefndir á aðalfundi
Kosið er í framboðsnefnd, kjörstjórn og samninganefnd á aðalfundi og hægt er að bjóða sig fram í fyrrgreindar nefndir fram að kosningu með því að senda póst á netfangið fslframbod@ki.is. Sigurður Sigurjónsson var sjálfkjörinn í embætti formanns á kjörtímabilinu 2026-2030.