Atkvæðagreiðsla í formanns- og stjórnarkjöri FF hafin

Félagsfólk Félags framhaldsskólakennara velur sér nú formann og stjórn fyrir næsta kjörtímabil.
Atkvæðagreiðsla í kosningum til formanns og stjórnar Félags framhaldsskólakennara hófst klukkan tíu í morgun, mánudaginn 26. janúar. Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
Kjörstjórn FF hefur ákveðið eftirfarandi:
- Atkvæðagreiðsla hefst klukkan tíu mánudaginn 26. janúar 2026
- Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan tíu fimmtudaginn 29. janúar 2026.
Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Frambjóðendur til formanns FF eru:
- Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
- Simon Cramer Larsen, formaður skólamálanefndar FF og dönskukennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
Hægt er að kynna sér framjóðendur til formanns hér.
Frambjóðendur til stjórnar FF eru:
- Anna Jóna Guðmundsdóttir, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
- Arnar Guðmundsson, Borgarholtsskóla
- Björn Gísli Erlingsson, Menntaskólanum á Egilsstöðum
- Daði Guðjónsson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
- Guðmundur Björgvin Gylfason, Fjölbrautaskóla Suðurlands
- Gunnvör Rósa Eyvindardóttir, Menntaskólanum við Sund
- Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
- Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Borgarholtsskóla
- Simon Cramer Larsen, Fjölbrautaskólanum við Ármúla
- Sólrún Geirsdóttir, Menntaskólanum á Ísafirði
- Stefán Svavarsson, Menntaskólanum í Kópavogi
Kosnir verða fjórir fulltrúar í stjórn FF.
Frambjóðendur kynna sig
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum.
Þegar komið er inn á Mínar síður sjást tvennar kosningar.
- Kosning til formanns FF 2026 – Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FF.
- Kosning til stjórnar FF 2026 - Merktu við þá fjóra frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn FF.
- Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt er móttekið.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við
- Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Athygli skal vakin á því að samkvæmt starfsreglum kjörstjórnar er einungis hægt að kjósa 4 í stjórn félagsins, hvorki fleiri né færri.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.