Atkvæðagreiðsla hjá FG er hafin

Fréttir|24. maí 2022

Félagsmenn FG velja sér nú stjórn, samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd. Kosningin fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.

Kjörnefnd FG hefur ákveðið að atkvæðagreiðsla í trúnaðarstörf fari fram með rafrænum hætti. Alls eru 38 félagar í framboði að þessu sinni. Sérstök kynningarsíða frambjóðenda er hér á vefnum. 

  • Atkvæðagreiðslan hefst þriðjudaginn 24. maí kl. 14:00
  • Atkvæðagreiðslunni lýkur þriðjudaginn 31. maí kl. 14:00. 

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörnefnd áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.  

Um atkvæðagreiðsluna

  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is 
  • Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
  • Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin
  • Smelltu á Kosning í stjórn og nefndir FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þá frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn, samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörnefndar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is.

Skoða frétt um frambjóðendur