Atkvæðagreiðsla hafin um nýjan kjarasamning grunnskólakennara

Fréttir|5. desember 2016

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi grunnskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins.

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning grunnskólakennara, sem skrifað var undir 29. nóvember síðastliðinn, hófst klukkan tólf á hádegi í dag og stendur atkvæðagreiðslan í rétt rúma viku, nánar tiltekið til klukkan 16:00 mánudaginn 12. desember.

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi grunnskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Atkvæðagreiðslan.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni. Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin, smellið á Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2016 og þá birtist atkvæðaseðillinn.

Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.

Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.

Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.

Upplýsingar og aðstoð:
Allar nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu Kennarasambands Íslands í síma 595 1111. Einnig má leita beint til Eddu Margrétar Hilmarsdóttur, umsjónamanns félagaskrár, í netfangið edda@ki.is