Atkvæðagreiðsla FL um vinnustöðvun hefst í fyrramálið
Samninganefnd Félags leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna KÍ í FL er starfa hjá sveitarfélögum landsins um vinnustöðvun fimmtudaginn 19. júní 2014 til að stuðla að framgangi fyrirliggjandi krafna félagsins.
Kjörstjórn hefur ákveðið, samkvæmt tillögu FL, að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti og hefjist miðvikudaginn 28. maí 2014 klukkan 10.00 og ljúki mánudaginn 2. júní 2014 klukkan 16.00.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er.
- Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun FL og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
- Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir og hægt er að senda henni póst.