Atkvæðagreiðsla FF og FS hefst 13. apríl
Stjórnir Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) hafa falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í FF og FS sem starfa í ríkisreknum framhaldsskólum. Atkvæði eru greidd um upptöku nýs vinnumats í framhaldsskólum á grundvelli kennsluþáttar (A-hluta) á grundvelli samkomulags frá 1. apríl 2015 þar sem aðilar eru sammála um að kjarasamningur þeirra frá 4. apríl 2014 haldi gildi sínu með þeim breytingum sem í samkomulaginu felast.
Kjörstjórn hefur ákveðið, samkvæmt tillögu FF og FS, að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti og hefjist mánudaginn 13. apríl 2015 kl. 9:00 og ljúki þriðjudaginn 14. apríl kl. 16.00.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa hjá ríkisreknum framhaldsskólum. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Atkvæðagreiðslan
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar.
Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um upptöku nýs vinnumats FF og FS (ríkisreknir skólar) – apríl 2015 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
Samkvæmt ákvörðun kjörstjórnar um framkvæmd leynilegrar allsherjaratkvæðagreiðslu eru trúnaðarmenn Kennarasambands Íslands umboðsmenn kjörstjórnar í hverjum skóla.
Kjörstjórn beinir þeim tilmælum til trúnaðarmanna að þeir hlutist til um að kennarar hafi aðgang að tölvu í skólanum og veiti þeim aðstoð við atkvæðagreiðsluna sé þess óskað. Jafnframt beinir kjörstjórn því til trúnaðarmanna að þeir hvetji félagsmenn til að nýta kosningarétt sinn. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.