Athugasemdir KÍ vegna veggspjalds Jafnréttisstofu

Fréttir|7. mars 2014

Björg Bjarnadóttir, varaformaður KÍ, hefur fyrir hönd Kennarasambands Íslands sent Jafnréttisstofu eftirfarandi bréf vegna veggspjalds sem nú er dreift í skólum. 

 

Jafnréttisstofa
Bt. Kristínar Ástgeirsdóttur
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri

 

Efni: Athugasemdir Kennarasambands Íslands (KÍ) við veggspjald sem er til dreifingar í skólum.


Íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur sem gerir það að verkum að konur og karlar vinna að mestu leyti með fólki af sama kyni. Staðalmyndir kynjanna hefta valfrelsi stúlkna og drengja þegar kemur að náms- og starfsvali og gera það að verkum að of fáar konur eru sýnilegar í valda- og virðingastöðum og fáir karlar í uppeldis- og umönnunarstörfum. Staðalmyndirnar þarf að rjúfa og stuðla að bættu samfélagi þar sem náms- og starfsval fólks byggir á áhugasviði en ekki á kyni. (Feitletrun undirritaðrar).

Ofangreindur texti er á veggspjaldi sem Jafnréttisstofa gaf út í tengslum við átak í því að rjúfa hefðir í starfsvali eftir kynjum. Átak í þessa veru er afar þarft og löngu tímabært og styður KÍ það heilshugar sem slíkt. Um þessar mundir er KÍ að vinna í því (m.a. átak á leikskólastiginu) að fá fleiri karlmenn til þess að velja sér kennslu sem ævistarf og þetta framtak Jafnréttisstofu hefði passað einkar vel í þá umræðu.

Því miður fellur Jafnréttisstofa í þá gryfju sem verið er að reyna að girða fyrir með textanum hér að ofan. Það að setja uppeldis- og umönnunarstörf sem andstæðu við valda- og virðingarstöður er algjörlega fáránlegt hvort sem er í þessu samhengi eða nokkru öðru. Það er nákvæmlega þetta viðhorf sem viðheldur þessum staðalmyndum og úreltu viðhorfum og er vægast sagt móðgandi við alla, bæði þá sem gegna þessum störfum og ekki síður ungdóminn sem á ekki að þurfa að alast upp við þetta viðhorf.

Óþarfi er að rökstyðja það að umönnun og uppeldi, þar með talin kennsla, sé valda- og virðingastaða. Það gefur augaleið að fá störf geta haft eins mikil áhrifavöld á framtíð og viðhorf þjóðarinnar – heilu kynslóðirnar.
Það er með öllu óviðunandi að Jafnréttisstofa sem annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála og á samkvæmt lögum að sjá um fræðslu og upplýsingastarfsemi og veita ráðgjöf í tengslum við jafnrétti kynjanna láti frá sér slíkan boðskap.

Kennarasamband Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við þetta og fer þess á leit að þetta verði leiðrétt.

Með vinsemd og virðingu
F.h. Kennarasambands Íslands
Björg Bjarnadóttir varaformaður