Áskorun til bæjarráðs Akureyrarbæjar
Stjórnendur í grunnskólum á Akureyri hafa sent áskorun til bæjarráðs Akureyrarbæjar um að beita sér í samningaviðræðum Skólastjórafélags Íslands (SÍ) og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS). Áskorunin er svohljóðandi:
Undanfarna mánuði hafa staðið yfir samningaviðræður SÍ og SNS vegna kjarasamninga skólastjórnenda en samningur þessara aðila rann út 31. maí 2015. Skólastjórar grunnskólanna á Akureyri eru afar ósáttir við stöðu samningamálanna enda hafa þau dregist mjög á langinn og síðustu misseri í raun verið í bið. Skólastjórnendur grunnskóla hafa verið langt fyrir neðan almenna stjórnendur í launum og starfsumhverfið hefur breyst verulega á síðasta áratug hvað varðar stjórnun, skipulag og faglega forystu. Ástæður þeirra breytinga eru m.a.:
- breytt lagaumhverfi grunnskólans
- innleiðing laga og reglugerða sem m.a. tengjast íslenskri málstefnu, jafnréttisstefnu og fleiri stefnumarkandi málefnum
- áhrif stjórnsýslu- og upplýsingalaga, m.a. á mannaráðningar
- ný Aðalnámskrá grunnskóla og innleiðing hennar
- skóli án aðgreiningar
- aukin samvinna við alla hagsmunaaðila sem koma að skólastarfinu
- auknar kröfur sveitarfélaga varðandi stjórnun og rekstur skóla
- samrekstur og sameiningar skóla
- starfsmannahald og starfsþróun
- kröfur um bætt skipulag vinnuumhverfis
- meiri kröfur til sýnilegrar og sannanlegrar skilvirkni á öllum sviðum í kjölfar aukinna mælinga og mats á skólastarfi, t.d. í samræmdum prófum, PISA, í skólapúlsinum o.s.frv.
- aukið samstarf við leik- og framhaldsskóla
- fjölgun rannsókna háskólanema og fleiri aðila
- ábyrgð á öllum rekstri skólans bæði faglegum og fjárhagslegum
- kröfur frá foreldrum vegna félags- og tilfinningalegra vandamála nemenda sem hefur fjölgað og orðið flóknari
- nýjar kröfur og margra vikna starf við vinnumat í nýjum kjarasamningi FG og SNS.
Þessar breytingar á starfsumhverfi og umsvifum starfsins hafa ekki verið virtar til launa. Margir kennarar eru komnir upp fyrir deildarstjóra og aðstoðarskólastjóra í launum og margir stjórnendur sjá það nú sem leið til bættra kjara að hætta í stjórnun og ráða sig í frekar til kennslu.
Við erum afar ósátt við þessa stöðu og skorum á bæjarráð Akureyrarbæjar að gefa skýr skilaboð til SNS um að beita sér fyrir því að stjórnendur fái að minnsta kosti sambærilega hækkun á launum og kennarar hafa fengið þannig að enginn stjórnandi verði með lægri laun en kennari.
Stjórnendur í grunnskólum Akureyrarbæjar