Áskorun til atvinnurekenda

Fréttir|25. mars 2021

Stjórn KÍ beinir þeim tilmælum til atvinnurekenda að gera allt til að foreldrum barna sé gert kleift að vera heima fram yfir páska.

Stjórn Kennarasambands Íslands beinir þeim tilmælum til vinnuveitenda á almennum og opinberum markaði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að foreldrum barna sé gert kleift að vera heima með börnum sínum fram yfir páska. Þannig geta atvinnurekendur lagst á árarnar í hinum samfélagslega slag við kórónuveiruna. Boðuð hefur verið snörp tilraun til að hefta útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. Mikið er undir í því að það takist. Til þess þarf að draga úr umsvifum.

Starfsfólk fyrirtækja hefur ítrekað þurft að sýna sveigjanleika og ábyrgðarkennd til að tryggja hag stofnana, fyrirtækja og samfélagsins alls allt síðasta ár og enn á ný þurfa vinnuveitendur að standa með starfsfólki sínu. Sveigjanleiki, alls staðar þar sem honum verður við komið, er siðferðileg skylda atvinnulífsins á þessari stundu.