Áskoranir og tækifæri í tónlistarkennslu

Fréttir|3. ágúst 2022

Tónlist er fyrir alla er yfirskrift viðamikillar ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu 8. og 9. september næstkomandi. Tæplega fjörutíu manns taka þátt í dagskrárliðum ráðstefnunnar.

Ráðstefnan Tónlist er fyrir alla er vettvangur fyrir kennara og stjórnendur tónlistarskóla til að koma saman, deila reynslu og þekkingu og um leið rækta fagleg tengsl við starfsfélaga.

Stefnumið ráðstefnunnar er að styrkja tónlistarkennslu og tónlistarmenntun. Auk þess að veita þátttakendum innblástur og næringu fyrir komandi skólaár og að stuðla að því að tónlist og tónlistarnámi verði gert hærra undir höfði í þágu sjálfbærni og velferðar.

„Yfirskriftin gefur tóninn fyrir vítt svið viðfangsefna ráðstefnunnar. Í brennidepli verða áskoranir og tækifæri í tónlistarkennslu og tónlistarnámi, nýbreytni og nýsköpunarverkefni og lifandi umræður um málefni sem snerta tónlistarkennslu á breiðum grunni. Fjallað verður um tónlist og tónlistarnám sem samfélagslega fjárfestingu, hvað sé svona sérstakt við tónlist í því samhengi, og horft á afurðir tónlistarskólakerfisins með víðtækum hætti þar sem skilningur á siðferðilegri og samfélagslegri ábyrgð er til grundvallar, segir á vefsíðu ráðstefnunnar.

Aðalfyrirlesarar verða Tryggvi M. Baldvinsson, deildarforseti tónlistardeildar LHÍ, dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, Elín Anna Ísaksdóttir, fagstjóri hjá LHÍ, Karen Erla Karólínudóttir, tónlistarkennari í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Ingunn Jónsdóttir tónlistarkennari hjá Skólahljómsveit Austurbæjar og Jóhann Ingi Benediktsson tónlistarkennari í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

Þá er ótalinn gestafyrirlesarinn Rick Beato sem er bandarískur tónlistarmaður, kennari og Youtube stjarna.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Samtök tónlistarskólastjóra, tónlistardeild Listaháskóla Íslands og Félag íslenskra hljómlistarmanna.

Allar upplýsingar um dagskrá, þátttakendur og skipulag er að finna á vefsíðu ráðstefnunnar www.tonlisterfyriralla.is.