ASÍ efnir til samkeppni meðal 10. bekkinga

Fréttir|10. september 2015

Alþýðusamband Íslands fagnar aldarafmæli 12. mars á næsta ári. Af því tilefni hefur verið efnt til samkeppni meðal nemenda í 10. bekkjum grunnskóla, sem ber yfirskriftina ASÍ 100 ára – Réttindabarátta í heila öld. 

Meginþema samkeppninnar er réttindi og skyldur á vinnumarkað, réttindi sem urðu að veruleika eftir baráttu verkalýðshreyfingarinnar. Spurt er: Hverju hefur baráttan skilað? Hvernig hafa aðstæður fólks á heimili og í vinnu breyst á heilli öld? Hver er þáttur verkalýðshreyfingarinnar í þeirri breytingu? Kunnum við að meta öll þau réttindi sem við höfum á vinnumarkaði í dag, t.d. orlofsréttinn, veikindarétt og aðgang að sjúkrasjóðum?

Þau tíu verkefni sem þykja skara fram úr fá vegleg verðlaun.

1. – 3. verðlaun eru 100.000 krónur.
4. – 10. verðlaun eru 50.000 krónur.

Verkefnin sem lenda í þremur efstu sætunum verða flutt eða sýnd á afmælishátíðinni í Hörpu þann 12. mars 2016, ásamt því að öll verðlaunaverkefnin tíu verða birt á vef ASÍ og mögulega notuð sem hluti af kynningarefni Alþýðusambandsins.

Fyrirkomulag keppninnar er í grófum dráttum þannig að nemendur og kennarar velja hugtök eða baráttumál sem viðfangsefni. Settur hefur verið upp vefur þar sem nemendur og kennarar geta nálgast heimildiir, ítarefni og myndir með þægilegum hætti auk þess að skrá sig til þátttöku.

Skrá þarf þátttöku fyrir 15. október 2015 og verkefnum skal skila rafrænt fyrir 20. desember 2015.