Ásabyggð 44 fær andlitslyftingu

Eitt elsta sumarhús Orlofssjóðs KÍ á Flúðum er eins og nýtt eftir gagngerar endurbætur.
Umfangsmiklum endurbótum er lokið á sumarhúsi OKÍ við Ásabyggð 44 á Flúðum. Húsið mátti muna sinn fífil fegri enda reist í lok síðustu aldar. Lengi vel gegndi húsið hlutverki starfsmannabústaðar.
Skipt var um innréttingar, húsgögn og búnað innandyra. Ytra byrði hússins fékk líka yfirhalningu; klæðningu var skipt út fyrir nýja, pallurinn endurnýjaður og aukinheldur var settur heitur pottur við húsið. Kostnaður við framkvæmdirnar er metinn vera um 30 prósent af þeirri upphæð sem það myndi kosta að rífa húsið og reisa nýtt.
Stjórn OKÍ stefnir á að halda endurbótum áfram á Flúðum og gera elstu húsin á svæðinu upp á næstu þremur til fjórum árum. Nú hafa þrjú húsanna fengið andlitslyftingu og fjögur bíða endurbóta.
Opnað hefur verið fyirr bókanir í húsinu við Ásabyggð 44 það sem eftir lifir af sumartímabilinu og á komandi hausti. Stjórn OKÍ vonar að félagsfólk fagni þessum endurbótum.