Arnbjörg Stefánsdóttir er nýr formaður SÍ

Fréttir|11. október 2025

Ný stjórn Skólastjórafélagsins tók við stjórnartaumum á aðalfundi félagsins í morgun. Langfjölmennasta námstefna SÍ fór fram í gær þar sem 380 skólastjórnendur mættu til leiks.

Nýr formaður Skólastjórafélagsins er Arnbjörg Stefánsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi. Hún tók við keflinu af Þorsteini Sæberg sem hefur gegnt formennsku í félaginu síðan 2018. Þorsteinn bauð sig ekki fram til endurkjörs.

Ný stjórn Skólastjórafélagsins var kynnt á aðalfundinum og auk Arnbjargar eiga þar sæti Álfheiður Einarsdóttir, skólastjóri Engjaskóla í Reykjavík, Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla í Reykjanesbæ,  Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla í Reykjavík og Sævar Þór Helgason, skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði. Varamenn í stjórn SÍ eru María Aðalsteinsdóttir, skólastjóri Valsárskóla á Svalbarðseyri, Maríanna Ragnarsdóttir, skólastjóri Lundarskóla á Akureyri og Þormóður Logi Björnsson, aðstoðarskólastjóri Akurskóla í Reykjanesbæ.

Þorsteinn Sæberg kvaddi félagsfólk SÍ á aðalfundinum og sagði formennskuna hafa verið heiður og það hefði verið sérlega ánægjulegt að vinna með skólastjórnendum og fyrir þá. Þorsteinn var kvaddur með standandi lóftaki.

Arnbjörg Stefánsdóttir er enginn nýgræðingur þegar kemur að Skólastjórafélaginu. Hún hefur átt sæti í stjórn SÍ frá árinu 2017 og verið varaformaður félagsins frá 2020. Hún sat einnig í skólamálanefnd SÍ á árunum 2008 til 2012, var í stjórn Skólastjórafélags Vesturlands um árabil, þar af sem formaður í tvö ár.

Arnbjörg hóf ferilinn sem grunnskólakennari árið 1994 og varð skólastjóri Hafnarskóla í Hornafirði árið 2000. Fimm árum síðar varð hún aðstoðarskólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi og árið síðar tók hún við starfi skólastjóra í sama skóla. Arnbjörg hóf störf hjá Kennarasambandinu 1. ágúst síðastliðinn og vann við hlið formanns.

Metfjöldi skólastjórneda á námstefnu

Ekki spillti það gleðinni á aðalfundi Skólastjórafélagsins að í gær fór fram árleg námsráðstefna SÍ. Metfjöldi sótti ráðstefnuna að þessu sinni eða um 380 skólastjórnendur hvaðanæva af landinu. Það er mesti fjöldi í sögu félagsins.

Námstefnan og aðalfundurinn fóru fram í Vallaskóla á Selfossi. Dagskráin var fjölbreytt og var gerður mjög góður rómur að þeim þremur fyrirlesurum sem stigu á stokk.

Aðalfyrirlesarinn var dr. Konstancija deGoeij, betur þekkt sem Konni deGoeij, sem hefur áratuga reynslu af störfum fyrir Kennarasambandið í Alberta í Kanada, auk þess að vera skólastjóri til margra ára, háskólakennari, fyrirlesari og rannsakandi.

Konni hélt fyrirlestur um reynslu sína af samskiptum á vinnustað, starfslokum, tímabundnum brottvikningum, tilfærslum í starfi, frammistöðumati, rannsóknum og yfirheyrslum vegna starfshegðunar, og auk þess starfsþróun og leiðtogaþjálfun. Inntakið var einkum að brýna fyrir skólastjórnendum að þeir séu leiðtogar, sem er stór áfangi á þeirra starfsferli, en starfinu geta fylgt flóknar áskoranir og ábyrgð sem nær út fyrir kennslustofuna. Það sé skólastjórnendans að skapa jákvætt námsumhverfi, styðja kennara og annað starfsfólk og um leið tryggja námsárangur allra nemenda.

Konni deGoeij, skólastjóri og fræðakona, hélt magnaðan fyrirlestur um ábyrgð og áskoranir sem skólastjórnendur þurfa að glíma við á degi hverjum. Góður rómur var gerður að erindi hennar.

Alls konar greind og flókinn heimur

Aðrir fyrirlesarar voru þeir Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við Háskólann á Akureyri, og Gestur Pálmason, alþjóðlegur stjórnendaþjálfari og fyrrverandi lögreglumaður.

Magnús Smári ræddi tæknibyltinguna sem við lifum við frá degi til dags; hvernig gervigreind er aðgengileg öllum. Hann sagði skólasamfélagið ekki þurfa lengur að svara spurningum um hvort brugðist verði við þessum hröðu tæknibreytingum heldur hvernig. Gestir á námstefnunni fengu hagnýt tól og vegvísa til framtíðar.

Gestur fjallaði um hversu veröldin er orðin flókin og hvaða tilhneigingu mannfólk hefur til að bregðast við auknu flækjustigi, hvernig mismunandi tegundir greindar spila þar inn í og hvernig aukinn þroski og betri tengsl munu bjarga heiminum.

 

Skilaboð aðalfundar SÍ

Að síðustu er vert að snúa aftur til aðalfundarins en þar voru samþykktar nokkrar ályktanir. Þær snúa til dæmis að símum og snjalltækjum í skólastarfi, aðgerðaáætlun varðandi menntastefnu til 2030, virðismati starfa og nýbirtum niðurstöðum TALIS-könnunarinnar. 

Þá voru samþykktar breytingar á lögum og tilkynnt um hverjir hafa tekið sæti í ráðum og nefndum félagsins. 

 

Arnbjörg Stefánsdóttir og Þorsteinn Sæberg fyrir utan Vallaskóla skömmu fyrir aðalfund Skólastjórafélagsins að morgni 11. október