Árásir Rússa fordæmdar

Fréttir|24. febrúar 2022

Formaður KÍ sendi kennarasamtökum í Úkraínu stuðningskveðju.

Formaður Kennarasambands Íslands sendi kollega sínum í Úkraínu stuðningskveðju í dag. Fyrir hönd Kennarasambands Íslands lýsti hann yfir stuðningi við kennara, börn og íbúa í Úkraínu á þessum hörmungartímum.

Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, segir Kennarasambandið fordæma blygðunarlausar og ofbeldisfullar árásir Rússa og lýsti yfir samstöðu með félagsfólki í úkraínsku kennarasamtökunum TUESWU.

Táknræn mynd fylgdi bréfinu en hana gerðu nemendur á IB braut við Menntaskólann í Hamrahlíð. Það er einlæg von allra að nemendur, kennarar og íbúar Úkraínu verði lausir við ofbeldi og stríð í náinni framtíð.

 

Bréf Ragnars Þórs Péturssonar, formanns KÍ, til TUESWU í Úkraínu.