Árangursríkur skipulagsdagur

Markmið starfsfólks Kennarasambands Íslands er að veita félagsmönnum góða og hraða þjónustu og leysa snarlega úr öllum málum sem upp koma.
Markmið starfsfólks Kennarasambands Íslands er að veita félagsmönnum góða og hraða þjónustu og leysa snarlega úr öllum málum sem upp koma. Starfsemin er hins vegar viðamikil, á köflum flókin, og verkefnin sem berast starfsmönnum mörg og mismunandi. Þó að starfsemin gangi í meginatriðum vel þarf eins og á öðrum vinnustöðum að fara reglulega yfir stöðu mála, meta hvað er vel gert og hvað gengur ekki nægilega vel.
Þetta var verkefni starfsmanna KÍ sem komu saman í húsnæði ÍSÍ í Laugardal í gær. Vinnan fram fór var unnin í framhaldi af úttekt sem Capacent gerði á starfsemi og rekstri KÍ á síðasta ári. Úrvinnsla skýrslu Capacent er hluti af starfsáætlun stjórnar KÍ á yfirstandandi ári. Á fundi starfsmanna í gær var farið yfir verkferla og sérstaklega rætt hvað vel er gert og á hvaða sviðum þarf að bæta starfsemina. Margt var tiltekið í umræðum, allt frá húsnæði KÍ í Kennarahúsinu sem að mörgu leyti hentar starfseminni illa, yfir í samskipti á vinnustað, símsvörun, almenna upplýsingagjöf og margt fleira.
Næstu vikur munu stjórnendur í Kennarahúsinu fara yfir niðurstöður fundarins og er það von allra að vinnan í gær skili sér fljótlega í enn betri og hraðari þjónustu við félagsmenn en veitt er í dag.