Annasamur vetur framundan

Fréttir|5. september 2014

 

Þórður Á Hjaltested, formaður KÍ, skrifar...

Síðustu misseri hefur Kennarasambandið unnið að því að auka og styrkja útgáfu sína. Í vor var tekin í notkun ný heimasíða sem þróuð verður áfram næstu mánuði. Einnig hefur upplýsingagjöf til félagsmanna einstakra aðildarfélaga verið efld í gegnum rafræn fréttabréf. Í dag stöndum við enn á tímamótum þegar Skólavarðan, málgagn KÍ, kemur í fyrsta sinn út sem rafrænn miðill. Félagsmenn geta nálgast blaðið í gegnum App á Apple Store og Google play en einnig í gegnum heimasíðu Kennarasambandsins á nokkrum mismunandi formum. Það á að tryggja að allir geti lesið blaðið á því rafræna formi sem þeim finnst þægilegast. Gert er ráð fyrir að blaðið komi út að fullu rafrænt fimm sinnum á skólaárinu og tvisvar til viðbótar bæði prentað og á rafrænu formi. Starfsmenn útgáfusviðs KÍ bera hitann og þungann af útgáfunni en ég hvet félagsmenn til að senda inn greinar til útgáfusviðsins, eða upplýsingar um efni sem vert er að fjalla um.
Samninga strax
Mikil orka fór í kjaraviðræður síðasta vetur en þrátt fyrir það náðu tvö aðildarfélög, Félag stjórnenda leikskóla og Félag tónlistarskólakennara, ekki að ganga frá kjarasamningi áður en Ríkissáttasemjari lokaði skrifstofum sínum í júlí vegna sumarleyfa. Það er auðvitað ótækt að ganga samningslaus inn í haustið og ég fagna því að annað þessara félaga, FSL, samdi í vikunni við samninganefnd sveitarfélaga. Nú skora ég á sveitarfélög landsins að ganga strax til samninga við Félag tónlistarskólakennara á sömu forsendum og gengið hefur verið frá samningum við önnur aðildarfélög KÍ.
Félag framhaldsskólakennara, Félag stjórnenda í framhaldsskólum og Félag grunnskólakennara standa nú frammi fyrir því mikla verkefni að gera nýtt vinnumat. Þeirri vinnu á að ljúka eigi síðar en í febrúar, eins og fjallað er um síðar í blaðinu. Verkefnið er krefjandi en það er von mín að þar náist farsæl niðurstaða.
Annasamur vetur framundan
Helsta verkefni KÍ á næstunni, fyrir utan hefðbundna þjónustu við félagsmenn, er að koma samþykktum þingsins í vor í farveg og til framkvæmda. Stefnan sem þar var mörkuð er ekki ósvipuð áherslum fyrri þinga. Litlar breytingar verða því á stefnu KÍ í stórum málaflokkum, svo sem kjara- og skólamálum. Á þinginu voru hins vegar gerðar talsverðar breytingar á lögum KÍ. Í nokkrum tilvikum var vald fært frá þingi til aðildarfélaganna, m.a. voru kosningar í stjórnir vinnudeilu-, orlofs- og sjúkrasjóðs teknar út af þingi, en í staðinn tilnefna öll aðildarfélög einn fulltrúa í stjórnir þessara sjóða. Stjórn KÍ gengur frá skipan í stjórnir, nefndir og ráð KÍ nú í september og munu allir fulltrúar fá afhent erindisbréf.
Hvítbókin
Á næstu vikum fer í gang vinna með menntamálaráðuneyti er byggir á Hvítbók menntamálaráðherra. Skipuð verður verkefnisstjórn og síðan þrír vinnuhópar sem hver um sig fjallar um afmarkað verkefni. Einum hópnum er ætlað að skoða lengd námstíma, annar fjallar um læsi og sá þriðji um starfsnám. KÍ mun taka þátt í þessari vinnu og vonast til að fá fulltrúa í hvern hóp til að tryggja að sjónarmið kennara fái að heyrast. Framkvæmdastjórn skólamálaráðs er þegar farin að fjalla um og undirbúa vinnuna framundan. Þeir sem tilnefndir verða í vinnuna af hálfu KÍ njóta góðs af því uppleggi en til viðbótar munu þeir að sjálfsögðu hafa stefnu KÍ, sem meðal annars var mótuð á þingi okkar í vor, að leiðarljósi.
Að lokum vil ég óska öllum félagsmönnum velfarnaðar í störfum sínum. Saman stöndum við sterk. Við menntum Ísland.