Annar- og orlofsuppbætur greiddar út um mánaðamótin
Fréttir|27. maí 2020

Uppbæturnar eru miðaðar við starfshlutfall og starfstíma félagsmanns. Þær verða greiddar út 1. júní.
Félagsmenn KÍ fá greidda annar- eða orlofsuppbót um næstu mánaðamót. Við útreikning annar- og orlofsuppbótar er miðað við starfshlutfall og starfstíma félagsmanns.
Full uppbót til félagsmanna í Félagi grunnskólakennara, Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félagi leikskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands er 91.225 krónur.
Full uppbót til félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum er 51.000 krónur.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag útreiknings aðildarfélaganna.