Anna María Gunnarsdóttir er nýr varaformaður Kennarasambands Íslands
Fréttir|13. desember 2017

Anna María hlaut rúmlega helming atkvæða.
Anna María Gunnarsdóttir hefur verið kjörin varaformaður Kennarasambands Íslands. Fjórir félagsmenn KÍ buðu sig fram í embættið og féllu atkvæði þannig:
- Anna María Gunnarsdóttir hlaut 1.653 atkvæði eða 52,86%
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir hlaut 845 atkvæði eða 27,02%
- Heimir Björnsson hlaut 259 eða 8,28%
- Simon Cramer Larsen hlaut 135 atkvæði eða 4,32%
- Auðir seðlar voru 235 eða 7,52%
Á kjörskrá voru 10.307 og greiddu 3.127 atkvæði, eða 30,34%. Atkvæðagreiðslan var rafræn, hófst klukkan 9.00 fimmtudaginn 7. desember og lauk klukkan 14 í dag, miðvikudaginn 13. desember.
Anna María Gunnarsdóttir tekur við embætti varaformanns af Aðalheiði Steingrímsdóttur á VII þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.