Anna María Gunnarsdóttir býður sig fram til formanns KÍ

Fréttir|29. september 2021

Anna María tilkynnti framboðsnefnd KÍ þetta í gærkvöld.

Anna María Gunnarsdóttir býður sig fram til formanns Kennarasambands Íslands. 

Anna María tilkynnti þetta í bréfi til framboðsnefndar KÍ í gærkvöld. 

Anna María er varaformaður Kennarasambands Íslands. 

Formannskjör fer fram í byrjun nóvember en formannsskipti fara fram á þingi KÍ í apríl á næsta ári.