Andi samstöðu á fundi tónlistarkennara og grunnskólakennara

Fréttir|28. nóvember 2016

Tónlistarskólakennarar og grunnskólakennarar komu saman til fundar í Iðnó klukkan 18 í dag.

Tónlistarskólakennarar og grunnskólakennarar komu saman til fundar í Iðnó klukkan 18 í dag. Tilefni fundarins er kjarabarátta Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum annars vegar og Félags grunnskólakennara hins vegar. Skipulag fundarins var í höndum grasrótarhópa kennara. Ávörp fluttu Júlíana Rún Indriðadóttir, skólastjóri Tónskóla Sigursveins, og Ragnar Þór Pétursson, grunnskólakennari í Norðlingaskóla. 

Diddú, Kristján Jóhannsson og Helga Bryndís Magnúsdóttur fluttu þögult atriði á sviðinu en fundarmenn sýndu baráttugleði með því að syngja saman nokkrum sinnum á meðan á fundinum stóð. Gunnar Helgason, leikari og barnabókahöfundur, steig á stokk undir lok fundarins og stappaði stálinu í kennara og lauk ræðu sinni með orðunum: Koma svo!

Fundurinn samþykkti ályktun þar sem kemur fram að tónlistarskólakennarar hafi nú „verið án kjarasamnings í 390 daga og við það ástand verði ekki unað lengur“. Fundurinn tók undir kröfu tónlistarskólakennara um leiðréttingu á launakjörum þessa fámenna kennarahóps. 

Þá kom fram í ályktuninni að verði ekkert gert í kjaramálum þessara kennarahópa blasi við að faglegt starf í grunn- og tónlistarskólum sé í uppnámi og yfirvofandi fækkun í stétt kennara. 

Myndir frá fundinum á Facebook.