Anders Rusk lætur af störfum

Kennarasambandið sendir Anders Rusk kveðju og þakkir fyrir gott samstarf á vettvangi Norrænu kennarasamtakanna á liðnum árum.
Síðstasti starfsdagur Anders Rusk, fráfarandi framkvæmdastjóra Norrænu kennarasamtakanna (NLS), er í dag.
Á þessum tímamótum sendir Kennarasamband Íslands honum kæra kveðju og þökk fyrir gifturíkt samstarf. Íslensk kennarafélög hafa tekið þátt í samstarfi á vegum Norrænu kennarasamtakanna, NLS, áratugum saman. Sameiginleg baráttumál þeirra eru fjölmörg enda menntahugsjónin áþekk á Norðurlöndunum. Síðasta áratuginn hefur Anders haldið utan um starfsemi NLS af einstakri fagmennsku og í auknum mæli er nú horft til menntakerfa Norðurlandanna til að leita fyrirmynda í heimi sem á margan hátt stendur á tímamótum.
Christer Holmlund, sem áður starfaði hjá samtökum sænskumælandi kennara í Finnlandi tekur nú við framkvæmdastjórastöðunni hjá NLS. Kennarasamband Íslands óskar honum velfarnaðar í því hlutverki og hlakkar til samstarfsins.