Ánægja, gleði og fagþekking besta veganestið – upplifun aðstoðarleikskólastjóra af starfi sínu
Aðstoðarleikskólastjórar eru almennt ánægðir í starfi, þeim finnst starfið fjölbreytt og persónuleg markmið þeirra með starfinu eru skýr. Þeir telja sig bæta skólastarfið með því að vinna að velferð nemenda og starfsfólks.
Sólveig Þórarinsdóttir
Svo hljóða meginniðurstöður rannsóknar sem undirrituð gerði með því að taka viðtöl við sex aðstoðarleikskólastjóra á höfuðborgarsvæðinu veturinn 2009-2010. Þemu rannsóknarinnar voru sex og eru þau; starfslýsingar, staðgengilshlutverk, ákvarðanir, stjórnunarstíll, samskipti og samvinna, handleiðsla og aðstoð við starfsfólk. Þemu rannsóknarinnar eru sex og eru þau; starfslýsingar, staðgengilshlutverk, ákvarðanir, stjórnunarstíll, samskipti og samvinna, handleiðsla og aðstoð við starfsfólk.
Aðstoðarleikskólastjórarnir sex áttu það sameiginlegt að hafa allir unnið lengi í leikskólum en höfðu starfað mislengi sem aðstoðarleikskólastjórar. Öllum viðmælendum bar saman um að þeir tækju þátt í stjórnun leikskólans og þeir væru staðgenglar leikskólastjórans. Þá sögðu þeir starf sitt að hluta óskilgreint og viðfangsefnin væru misjöfn eftir verkefnum og dögum. Fram kom að eitt fjölmargra hlutverka aðstoðarleikskólastjórans væri að leysa starfsfólk af vegna orlofs eða fjarveru. Þeir þekkja því oft og tíðum barna- og starfsmannahópinn nokkuð vel og starfa náið með báðum hópum. Ánægja, gleði og fagþekking er að mati viðmælendanna gott veganesti í vinnunni við að byggja upp betri skóla til framtíðar.
Margt áhugavert kom fram í umræðum við aðstoðarleikskólastjórana þegar ritgerðin var kynnt í menntabúðum á námstefnu FSL. Svo sem að starfslýsing þeirra er opin og væri til bóta að skilgreina hana betur. Starfsemin fer eftir stærð og gerð hvers skóla og sveitarfélags – og það þykir skipta máli hvort aðstoðarleikskólastjórinn sé líka deildarstjóri. Misjafnt er eftir sveitarfélögum hvort gerður sé skriflegur samningur um hlutverk og starfsskyldur aðstoðarleikskólastjórans en nokkrir þátttakendur í menntabúðunum kváðust á þeirri skoðun að ákjósanlegt væri að hafa samning þar sem vinnuskipting og verksvið er skilgreint.
Sýnileikinn er mikilvægur og fannst viðmælendunum í menntabúðunum hann vera mikill innan veggja skólanna en ekki alltaf út á við. Aðstoðarleikskólastjórar hafa oft ekki skrifstofu og búa við lélega vinnuaðstöðu. Af viðtölunum má ráða að mikilvægt er að aðstoðarleikskólastjóri sé sýnilegur innan skólans og að hann starfi á öllum deildum skólans.
Fagleg handleiðsla var mikið í umræðunni í menntabúðunum enda mikilvægur þáttur starfsins; jafnt hvað varðar starfsfólk og börnin. Viðmælendur voru á einu máli um að samræmd vinnubrögð virka vel og einn skemmtilegasti þáttur í starfi aðstoðarleikskólastjóra er að fá tækifæri til að miðla og deila reynslu sinni.
Sólveig Þórarinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Aspar.
Greinin er byggð á ritgerð höfundar til meistaraprófs í menntunarfræðum