Ályktun vegna sumaropnunar leikskóla Hafnarfjarðar

Fréttir|24. nóvember 2020

Stjórnir FSL og FL hvetja Fræðsluráð Hafnarfjarðar að endurskoða ákvörðun sína um sumaropnun leikskóla.

Í dag samþykktu stjórnir Félags stjórnenda leikskóla og Félags leikskólakennara eftirfarandi ályktun:

Stjórnir Félags stjórnenda leikskóla og Félags leikskólakennara hvetja Fræðsluráð Hafnarfjarðar að endurskoða ákvörðun sína um sumaropnun leikskóla.

Stjórnendur og kennarar í leikskólum Hafnarfjarðar hafa sent inn undirskriftalista til að mótmæla sumaropnuninni og ítrekað bent á fagleg rök sem benda til þess að ákvörðunin um sumaropnun leikskóla í Hafnarfirði sé ekki tímabær.

Við hvetjum Hafnafjarðarbæ til að efla skólana sína og fjölga fagfólki áður en starfsumhverfi þeirra er breytt en opinberar tölur sýna að hlutfall fagfólks í leikskólum Hafnarfjarðar hefur lækkað síðustu ár og teljum við ekki skynsamlegt að auka enn á álagið í skólunum við slíkar aðstæður. Leikskólar undir miklu álagi geta síður stutt við barnvænt samfélag.

Allt starfsfólk leikskólanna á nú 30 daga orlof sem þarf að klára og er það erfitt í framkvæmd á sama tíma og skólinn er opinn.

Vilji Hafnarfjörður, eða önnur sveitarfélög, veita foreldrum þjónustu sem tekur tillit til þarfa þeirra hvað varðar töku sumarorlofs þarf að finna aðrar lausnir. Leikskólastigið, sem samkvæmt lögum 90/2008 er fyrsta skólastigið, hefur ekkert rými til þess að taka við slíku verkefni.

 

Fyrir hönd stjórna Félags stjórnenda leikskóla og Félags leikskólakennara,

Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara