Ályktun til ráðherra

Fréttir|22. ágúst 2024

Stjórn Samlífs sendi frá sér ályktun til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra um stöðu raungreina á Íslandi.


 Reykjavík, ágúst 2024

 

Til: ráðherra skólamála;

Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og
Ásmundar Einars Daðasonar, Mennta- og barnamálaráðherra

 

Efni: Ályktun um stöðu raungreina á Íslandi.

Samtök líffræðikennara (Samlíf) er faggreinafélag skipað félögum sem kenna líffræði og náttúru­greinar á öllum skólastigum (frá leikskóla til háskóla). Í lögum (Samtök líf­fræði­kennara, 2019) félagsins kemur fram að markmið samtakanna er að auka og bæta kennslu í líf­fræði á öllum skólastigum. Stefnt er að því að ná þessum markmiðum meðal annars með því að stuðla að bættum starfsskilyrðum kennara og styðja við menntun líf­fræðikennara.

Nýjum námskrám ættu að fylgja nýjar áskoranir. Áskoranir sem bæta starf og auka gæði menntunar. Heppilegt væri að þetta ætti við styttingu náms­brauta framhaldsskólanna.

Áskoranir undanfarinna missera hafa legið í því að lágmarka þann skaða sem stytting­in fól í sér. Fjölmargir metnaðarfullir áfangar hafa verið smíðaðir, sam­þykktir og auglýstir í skólanámskrám íslenskra framhaldsskóla. Sumir eru kennd­ir á hverri önn, aðrir aðra hverja og enn aðrir aldrei, þar sem áfangarnir ná ekki að uppfylla viðmið um hópastærðir og er því ekki rekstrargrundvöllur fyrir kennsl­unni. Áhugasamir nemendur sem óska eftir að dýpka þekkingu sína hafa því í mörgum tilfellum ekki tækifæri til þess þar sem skólar hafa ekki bol­magn til að bjóða alla áfanga.

Sum fagna styttingu námstíma, telja það ákall breyttra tíma og mikilvægt til að leiðrétta vissa tímaskekkju í íslensku skólakerfi. Eftir breytinguna út­skrifist þau sem ljúka námi á þremur árum því á sama tíma og jafnaldrar þeirra erlend­is. Útlönd eru þó allskonar og tímaskalar hvorki fasti né forsenda kerfis­breyt­inga á Íslandi. Fagleg rök um mikilvægi ákveðinna náms­greina, hverju mætti sleppa o.s.frv. hefðu verið haldbærari forsendur fyrir breytingum. Fram­halds­skólastigið á Íslandi hefur verið stytt í nám sem samsvarar þremur árum. Skólafólk veit að þessi breyting byggir ekki á faglegum rökum um aukin gæði menntunar. Stjórn Samlífs hafði fyrir styttingu hvorki borist kvörtun frá há­skólum á Íslandi vegna of mikillar hæfni útskrifaðra fram­haldsskólanema í náttúru­fræðum, né tekið eftir samfélagsumræðu þess efnis.

Háværar raddir hafa verið uppi um skort á fólki í svokölluðum STEAM greinum (vísindi, tækni, verkfræði, listsköpun og stærðfræði). Því er auðvelt að rök­styðja nauðsyn þess að efla ætti kennslu í náttúrufræði í stað þess að skera hana niður. Samtök líf­fræðikennara hafa um árabil sent frá sér ályktanir þar sem viðraðar eru áhyggjur af því að raungreinakennslu fari hnignandi bæði í grunn- og fram­halds­skólum. Á sama tíma og kennsla í raungreinum dregst saman á fram­halds­skólastigi hefur fjöldi kennslustunda í raungreinum á efsta stigi grunn­skóla staðið í stað. Þar er þó ætlast til að fram fari kennsla sem eitt sinn átti heima í fram­haldsskólunum. Samkvæmt viðmiðunarstundaskrá er gert ráð fyrir á 340 mínútum á viku í náttúrugreinum á efsta stigi, sem er alltof lítið. Reynt hefur verið að fækka kennslustundum enn frekar en vegna kröftugra mótmæla var fallið frá því. Kennslustundum var þó fjölgað á yngri stigum. Í framhaldi af styttingu á námsbrautum framhaldsskólanna væri eðli­legra að fjölga kennslu­stundum í raungreinum í grunnskóla, sérstaklega með tilliti til þess að þeir nem­end­ur sem fara á aðrar brautir en náttúrufræði­braut út­skrifast í mörgum tilfell­­um úr framhaldsskóla án þess að taka einn einasta raun­greinaáfanga. Þessir nemendur eru kennarar framtíðarinnar, fólkið sem á að kveikja áhuga kom­andi kynslóða á eigin heilbrigði sem og jarðarinnar. Þetta eru meðal annars verðandi lögfræðingar, blaðamenn og að ekki sé talað um kjósendur.

Á tímum hnattrænnar hlýnunar, súrnunar sjávar og kröfunnar um sjálfbæra nýtingu auðlinda er einnig áhyggjuefni að nú er svo komið að nemendur á náttúru­fræðibrautum sumra skóla ljúka stúdentsprófi án þess að hafa fengið kennslu í vist- og umhverfisfræðum, undirstöðugreinum þegar kemur að allri um­gengi okkar um náttúru og auðlindir. Verkleg kennsla í raungreinum hefur jafn­framt dregist saman og fáir skólar hafa tök á því að bjóða upp á fram­bæri­legar verklegar æfingar og vettvangsferðir. Sömu sögu má segja um æðstu mennta­stofnun landsins, Háskóla Íslands, þar sem verulega hefur verið dregið úr verklegri kennslu og vettvangsferðir heyra nánast til undantekninga vegna fjár­sveltis. Samtök líffræðikennara ítreka áhyggjur sínar af stöðu þessara mál. Mikil­vægi þess að auka menntun á þessum sviðum ætti einnig að vera augljóst á tímum aukinnar tækni­væðingar samfélagsins. Við hátíðleg tækifæri er mikil­vægi aukinnar menntun­ar í vísindum ítreka. Mun heillavæn­legra væri að láta verk­in tala.

Samlíf sendu frá sé ályktanir til mennta- og menningarmálaráðherra vegna niður­skurðar í raungreinakennslu árin 2013, 2014, 2015, 2016 og 2018. Einu við­brögð ráðuneytisins var staðfesting á móttöku erindis árið 2016. Samlíf undr­ast og eru ósátt við að hafa hvorki fengið svör né viðbrögð við þessum form­legu erindum sem þó er kveðið á um í málshraðareglu (9. gr. 37/1993). Auk þess vekur furðu að ráðuneyti sem í  sem og að ráðuneyti sem í orði kveðnu vill fjölga nemendum í raungreina- og tækninámi sporni ekki við þessari skerð­ingu og kalli eftir að raungreinarnar: líffræði, efnafræði, eðlisfræði og jarð­fræði, verði ríkur hluti af íslensku stúdentsprófi. Ráðherrar eru eindregið hvatt­ir til að gaumgæfa vel uppbyggingu raungreinakennslu með áherslu á verk­lega kennslu til að tryggja að nemendur nái tilsettum hæfniviðmiðum.

Stjórn Samlífs – Samtaka líffræðikennara

Hólmfríður Sigþórsdóttir Flensborgarskólanum, formaður

Rúna Björk Smáradóttir Fjölbrautarskólanum í Ármúla, gjaldkeri

Vala Guðný Guðnadóttir Verslunarskóla Íslands, ritari

Atli Jósefsson Menntaskólanum við Hamrahlíð, meðstjórnandi

Helga Snæbjörnsdóttir Hlíðaskóla, meðstjórnandi, SonS

Ólafur Patrick Ólafsson Háskóla Íslands, meðstjórnandi, IBO

Brynja Gunnlaugsdóttir Menntaskólanum við Sund, varastjórn

Sólveig Hannesdóttir Menntaskólanum í Reykjavík, varastjórn

 

Samrit sent:

Kennarasamband Íslands (utgafa@ki.is)

Formanni Félags framhaldsskólakennara (FF)

Formanni grunnskólakennara (FG)

Formanni Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS)

Formanni skólamálanefndar FF

Vísir (visir@visir.is)
Ríkisútvarpið (frettir@ruv.is)
Heimildin (heimildin@heimildin.is)
Morgunblaðið (mbl@mbl.is)