Ályktun Kennarafélags Menntaskólans við Hamrahlíð
Fundur í Félagi Kennarafélags Menntaskólans við Hamrahlíð, haldinn 11. maí 2016 fagnar því að sáttatillaga milli Félags framhaldsskólakennara/Félags stjórnenda í framhaldsskólum og Kennarasambands Íslands um Vísindasjóð FF/FS hlyti brautargengi á aukaaðalfundi FF/FS á Grand Hotel þann 8. apríl síðastliðinn.
Löngu er tímabært að deilum og málaferlum sjóðstjórnar og KÍ linni. Illt er að una því að tilheyrandi fjárfúlgur renni úr sjóðnum til að standa straum af kostnaði við málaferli. Fundarmenn telja það spor í rétta átt að sjóðurinn verði aftur færður inn í Kennarahúsið og í umsjá væntanlegs starfsmanns FF/FS. Það mun auka og bæta þjónustu við félagsmenn sem er brýnt. Fundurinn hvetur málsaðila til að grafa stríðsöxina, læra af því sem miður hefur farið og horfa til framtíðar með hagsmuni félagsmanna í fyrirrúmi. Þannig verði tryggt að sjóðurinn eflist og standi undir því hlutverki sína að stuðla að og styrkja starfsþróun félaga í FF og FS.