Ályktun kennara í Snæfellsbæ

„Kjarabaráttu okkar kennara er hvergi lokið, því miður. Því er eðlilegt að halda baráttunni áfram,“ segir í yfirlýsingu frá kennurum í Snæfellsbæ.
Kennarar í Snæfellsbæ sendu frá sér ályktun í tilefni af bókun sem bæjarráð Snæfellsbæjar sendi frá sér fyrr í dag. Fjallað var um verkfall kennara við Leikskóla Snæfellsbæjar á hádegisfundi ráðsins, en félagsmenn í Félagi leikskólakennara, sem starfa í Leikskóla Snæfellsbæjar, hafa verið í verkfalli síðan 1. febrúar og munu verða áfram. Hér má sjá ályktun kennara í heild:
„Við, kennarar í Snæfellsbæ, sjáum okkur knúna til þess að bregðast við bókun bæjarráðs varðandi verkfall leikskólakennara í Snæfellsbæ sem birtist m.a. á Facebooksíðu Snæfellsbæjar, fimmtudaginn 20. febrúar 2025.
Eins og bæjarráð bendir réttilega á eru sex leikskólakennarar í verkfalli. Sú staðreynd að þetta séu svo fáir kennarar er einmitt ástæðan fyrir baráttunni okkar, að auka hlutfall kennara í kennslu. Samkvæmt lögum á hlutfall kennara að vera tveir af þremur starfsmönnum leikskóla og eins og staðan er í dag þá er það ekki raunin í Snæfellsbæ.
Síðustu tíu ár hefur orðið mikil fækkun á kennurum á öllum skólastigum, hver ætli ástæðan sé?
Í miðri kjarabaráttu stefndi Samband íslenskra sveitarfélaga KÍ fyrir Félagsdómi sem klofnaði í niðurstöðu sinni varðandi lögmæti verkfalla KÍ. Niðurstaðan hafði í för með sér að kennarar í Leikskóla Snæfellsbæjar voru þeir einu sem voru í lögmætu verkfalli. Kjarabaráttu okkar kennara er hvergi lokið, því miður. Því er eðlilegt að halda baráttunni áfram.
Það er þungbært að taka ákvörðun um að fara í verkfall og gerir það enginn af léttúð. Leikskólakennarar í Snæfellsbæ standa svo sannarlega ekki einir í þessari baráttu, það er mikil samstaða hjá kennurum og frá mörgum aðilum í samfélaginu.
Það er von okkar allra að samningar náist sem fyrst.
Virðingarfyllst, trúnaðarmenn leik- og grunnskólakennara í Snæfellsbæ.“